3. flokkur FRAM er töff

FRAM TIL SIGURS OG EKKERT KJAFTÆÐI

08.02.2012 10:07:29 / Haukur

Fimmtudagur-Grafarholt kl 18,45

Rútan fer kl 18,15.

Styttist í fyrsta leikinn í RVK-mótinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2012 14:05:45 / Haukur

Þriðjudagur-æfingin í dag

Ef að veðrið verður vitlaust og ekki spilfært munum við fara upp í fundarsal íFramhúsinu og fara yfir það hvernig taktík við spilum og allar reglur og annað tengt flokknum í sambandi við RVK-mótinu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2012 18:36:00 / Haukur

Næstu æfingar

Mánudagur 30.Janúar
Grafarholt kl 19,00
Rútan fer frá Safamýri kl 18,30

Þriðjudagur 31.Janúar
Safamýri kl 18,30
Rútan fer frá Ingunnarskóla kl 18,00 með viðkomu í Sæmundarskóla

Fimmtudagur 2.febrúar
Grafarholt kl 18,45
Rútan fer frá Safamýri kl  18,15

Föstudagur 3.Febrúar
Safamýri kl 17,00
Axel,Danni og Jhói Salinas eiga að mæta með 2 flokknum.

Mánudagur 6.Febrúar
Grafarholt kl 19,00
Rútan fer frá Safamýri kl 18,30

Þriðjudagur 7.Febrúar
Safamýri kl18,30
Rútan fer frá Ingunnarskóla kl 18,00 með viðkomu í Sæmundarskóla

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.01.2012 18:52:26 / Haukur

Laugardagur-inni í Álftó kl 15,30

Upphitun með tækniæfingum

Skalla-móttökutennis

Styrkur

Spil

Teygjur

Þetta er þema dagsins

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2012 15:56:29 / Haukur

Flott úkoma í þoltestinu hjá Álftó drengjum

Miðað við að við erum ekki byrjaðir að taka á því sökum veðurfars og erfiðra vallarskylirða þá komu tölurnar í píb-testinu sem haldin voru í Álftó mér þægilega á óvart.
Þeir strákar sem tóku testið komu allir vel út og er það vel.

Axel var með 13,6 hjá 10 bekk en Halldór var næstur með 13,0 og þar á eftir komu þeir Frikki með 12,10 ,Raggi og Jói A báðir með fínann tíma þó svo að einhver vildi vera með aðeins meira í tölum.
Gunnar Axel þarf að bæta sig en það gerist bara með að mæta á æfingar.

Í 9 bekk voru Jhói Salinas,Andri og Flosi allir með flottan tíma en Elli var ekki með sökum veikinda..
Jhói Salinas var með tímann 12,8 sem er frábært.

Núna bíð ég eftir tímum frá Hvassó,Ingunnarskóla og Sæmundarskóla.
Ef þið eigið eftir að taka þetta test sem notað er í grunnskólum Reykjavíkur þá bið ég ykkur að leggja ykkur fram á fullum þunga svo að ég sé með allar þessar tölur á hreinu og enginn hafi verið á hálfum hraða í píb-testinu.
Ég mun tala við leikfimiskennarana ykkar til að fá sannar tölur og vonandi goðar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2012 11:36:24 / Haukur

Föstudagur-inni í Álftó

Æfum inni í Álftó í dag kl 17,00-18,00

Bolti og styrkur

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2012 23:09:10 / Haukur

Erum að prufa nýtt útlit

Hvernig finnst ykkur þetta ?

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 18:18:21 / Haukur

Reykjarvíkurmótið og æfingagjöldin

Núna nálgast Reykjjavíkurmótið og nú er komið að því að ganga frá æfingagjöldunum fyrir vor og sumar.

Allar útskýringar eru hér fyrir neðan í færslu frá stjórninni.
Ég má ekki nota leikmenn séu þeir ekki búnir að ganga frá eða semja um gjöldin.

Það er frístundarstyrkur og einnig styrkur til þeirra sem æfa fótbolta og handbolta en sjón er sögu ríkari og lesið þessar upplýsingar hér fyrir neðan eða hafið samband við Tóta í Safamýrinni eða Daða í Grafarholti.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 15:07:50 / Haukur

U-16 valið fljótlega

Nýr hópur verður valinn fljótlega á æfingar fyrir 97 árganginn sem er u-16 ára hópur.

Arnór var síðast og stóð sig mjög vel og setti vel inn í bankann fyrir framtíðarhóp u-16.
Ég tiltók þrjá leikmenn fyrir utan Arnór sem hvílir þetta skiptið þar sem nýjir leikmenn koma inn sem  Freyr Sverrisson þjálfari u-16 hefur möguleika á að velja.

Nú er að sjá hverja af þessum þremur hann velur eða kanski að allir detti inn.
VIð bíðum spenntir og vonum það besta en allir þessir þrír eiga skilið að vera þar.

Hinsvegar get ég ekki mælt með mönnum sem ekki mæta vel upp á æfingar þrátt fyrir að þeir hafi fullt erindi þangað.
Ég mun aldrei ljúga að þjáfurum landsliða ef menn eru ekki að standa sig í mætingum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2012 18:34:47 / Haukur

Næstu æfingar

Miðvikudagur

Innandyraæfing í Állftó kl 15,00-16,00
Spilæfing og styrkur

Fimmtudagur

Æfing í Grafarholti  kl 18,45.
Rútan fer kl 18,15.

Föstudagur

Æfing inni í Álftó kl 17,00-18,00
Spilæfing og styrkur

Laugardagur

Æfing inni í Álftó kl 15,30-17,00.
Skallatennis,spil og styrkur

Koma með innandyraskó á æfingarnar sem eru inni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2012 12:41:52 / Haukur

Æfingagjöldin 2012

Ágætu foreldrar/forráðamenn. />

 Vakin er athygli á því að búið er að opna fyrir skráningu árið2012 í hinu nýja skráningar- og greiðslukerfi Fram á netinu.

/>

Þeir sem hafa ekki þegar gengið frá greiðslu æfingagjalda 2012 eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu á netinu.
Eins og áður verður hægt að greiða með kreditkorti.  Hægt verður að skipta gjaldinu í allt að 6 greiðslur.  Einnig geta þeir sem eru með lögheimili íReykjavík áfram greitt með frístundakorti Reykjavíkur. Frístundastyrkurinn fyrir árið 2012 er kr. 25.000-.
/>

Þeir sem vilja greiða með peningum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofur Fram í Safamýri eða Grafarholti.  Ekki verða lengur sendir út greiðsluseðlar. />

Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barn greiðir fullt gjald en yngra fær 20% afslátt. Afslátturinn reiknast í kerfinu og reiknast 10% af hvoru gjaldi þegar greitt er fyrir seinna barnið. 
Hægt er að sækja um æfingastyrk FRAM sem er endurgreiðsla til þeirra iðkenda sem stunda fleiri en eina íþróttagrein yfir árið
. Sjá upplýsingar um æfingastyrk á heimasíðu Fram.

Smelltu hér til að ganga fráskráningu/greiðslu eða uppfæra upplýsingar />

Samkvæmt reglum knattspyrnudeildar Fram er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.

Nánari upplýsingar veita: 
Þór Björnsson, íþróttastjóri533 5600, toti@fram.is 
Daði Guðmundsson,íþróttafulltrúi í Grafarholti 587-8800, adi@fram.is" target="_blank">dadi@fram.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2012 17:51:46 / Haukur

Mánudagur-Grafarholt kl 19,00

Rútan fer kl 18,30

Ég minni menn á að það styttist í Reykjarvíkurmótið en það hefst um miðjan Febrúar.

Við erum ekki alveg á tíma með allt saman en það verður bara að vera svo.

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 22:05:09 / Haukur

Nokkrar tölur úr Leiknisleiknum

Hér koma nokkrar tölur um þá sem unnu flesta bolta í leiknum á móti Leikni.

Frikki fór mikinn í leiknum og með dugnaði sínum vann hann 5 bolta á meðan Runi skrifari vann sín störf.

Arnór stöðvaði margar sóknir á miðsvæðinu en hann vann 4 bolta á meðan skriffirnskunni stóð.

Danni er oft grimmur á boltann og slátraði 3 boltum

Jói A tók 2 öflugar tæklingar þar sem boltinn vannst á hættusvæði.

Allt var þetta í ákveðinn tíma á meðan Runi tók þessar og nokkrar aðrar tölulegar staðreyndir á blað.En þetta varaði ekki allan leikinn en samt gaman að sjá það sem maður sér ekki í hita leiksins.

Við fengum 3 horn en Leiknir fékk 1 horn.

Það voru þeir Axel og Andri sem sáu um að krækja í hornin fyrir okkur.

Jói  A,Alex,Axel,Danni voru oftast í því að brjóta á Leiknismönnum og fá dæmdar á sig aukaspyrnur.

Axel og Danni bjuggu til 2 dauðafæri með flottum sendingum innfyrir vörn Leiknis.

Þetta var svona til gamans gert að tékka á þessu en einnig í fúlustu alvöru.
Því að leikur og alvara fléttast æði oft saman.

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 18:48:47 / Haukur

Reykjarvíkurmótið

Nú eru drögin að RVK-mótinu komin inn en ef ég næ ekki þeim fjölda sem þarf til að manna tvö lið í mótinu verð ég að draga b liðið úr mótinu.

Svo það er ykkar að mæta vel á æfingar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2012 15:26:50 / Haukur

Fimmtudagur-Grafarholt-gervigras kl 18,45

Rútan fer kl 18,15 frá Safamýrinni

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  18  Alls: 156631
Klukkan
Fótboltinn
Síðast innskráður
Ég var síðast inni í gær
Dagsetning
9. febrúar 2012
Könnun
Hvaða móralska dag skal halda í flokknum ?
Bíó
3 atkvæði

Pizza og bolti
2 atkvæði

Út að borða og svo í bíó
4 atkvæði

Gönguferð upp Esjuna
3 atkvæði

Horfa á meistaradeildina og pizzur með því
9 atkvæði

Horfa á góða mynd í félagsheimilinu og pizzur með því
8 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 29
Talning
Eftir 61 daga
Vorið er komið